Myndasíða Sturlu Högnasonar. Myndir úr fórum Sturla Högnasonar og Sigrúnar Reimarsdóttur.

Mynd Lokinhamrar í Arnarfirði

Grín myndir no 4

Þá störtum við nýrri síðu Hrönn mín og reynum að hafa gaman af þessu bulli í síðunni. Ég reyni að senda liðið út og suður eftir hentileikum. Láttu þér ekki bregða þó þeir mæti samt í vinnu, hahaha, eins og einhver myndi segja. Þinn vinur Stulli H

Ætli það sé ekki við hæfi að hafa eina góða af eiganda síðunnar, til skemmtunar fyrir þá sem flækjast um netið !! Góða skemmtun



> Það er mikið að maður getur farið að halda uppá kosningasigurinn. Það
> voru allir búnir að spá okkur hrakförum!! Þeim varð ekki af ósk sinni
> Vinstri grænu




Ertu búinn að setja upp rússíbana í garðinum hjá þér, verður manni ekki boðið að fara eina ferð í honum ?


> Jónas dreymir um það að sigla niður Amason og komast þar með í
> heimsmetabókina . Sá er bjartur, ég held að hann verði þá að kjósa
> framsókn til að fá einhverja athygli


Hvaða ferðalag er þetta á þér Ævar ? Hefði ekki verið nær að hafa konuna með heldur en þessa hunda ? Nú er ég hættur að skilja þig vinur ?..


Ég skil ekkert í þessum mönnum hjá Orkubúinu að leggja ekki rafmagn fyrir mig, ég veit að það er langt frá Þingeyri til Lokinhamra en þeir hafa alveg efni á því. Þetta er bölvað puð að framleiða þetta sjálfur og svo er netið alltaf flöktandi?



> Maður væri tilbúinn að ráðast inn í Íran með Bush ekki spurning, já,
> já klár í slaginn



Er ekki best að elda hafragraut fyrir hálfan mánuð í einu Sigrún ? Er ekki allt í lagi með þig Stulli minn ? Það hlýtur að vera, ég er búinn að búa svo lengi með þér Sigrún mín, heldurðu að þú værir ekki búin að skifta ef ég væri ekki í lagi ? Jú það er satt.


> Hvað ætlar þú að gera við svona stórt hjól Bergur ? Ég ætla að nota
> það á hálendinu, er ekki allt í lagi með þig ! þú verður með Ómar á
> hælunum á þér, takandi myndir til að senda sjónvarpinu.


> Ég var að vona að það yrði meira að gera en þetta, en það hlýtur að
> rætast úr þessu, maður verður að vera bjartsýnn, annað gengur ekki.


Varstu að fá þér skutlu Baddi, þessi hlýtur að vera góður til að fara á í hesthúsin?


> Á að fara að grilla Guðni? er stór veisla hjá þér, eða ertu að bjóða
> vinnufélögunum að borða með þér ?


> Varstu að fá þér nýtt hjól Baddi? Er þetta ekki full stórt fyrir þig
> til að vera á ? Þú getur ekki keppt á þessu, það á enginn svona stórt hjól nema þú !!


> Það er engin furða þó að ég hafi ekki fundið þig lengi, fyrst þú ert
> komin í klaustur Sigrún mín, en hvaða kúla er þetta á þér ?hef ekki
> tekið eftir þessu fyrr.


Þér er flest til lista lagt Fribbi minn, að geta ræktað svona tré til að sitja í, maður fer nú ekki í skóna þína, enda notum við ekki sama númer kallin minn.



Þetta er ekki gott Bjössi, nú erum við komnir aftur til fortíðar það hefði verið nær að leyfa Rannveigu að stækka álverið, þá værum við ekki að púla með þennan valtara. Þetta er þér að kenna Bjössi minn, þú áttir að segja já, þá værum við á barnum núna, búnir að fá nokkra bjóra !!!!

Erlendis, Erlendur, er verið að æfa sig í bjórdrykkju fyrir næstu reisu. Það er ekki seinna vænna hjá þér, alltaf í útlöndum eins og stórlaxarnir?..

Ég er kominn í svaka erfiða þjálfun hjá Húgó vini mínum, hann er sá klárasti í kúngfú sjálfsvörn. Við skiljum kannski ekki alltaf hvern annan en þetta bjargast alltaf, er það ekki Hrönn?


Stopp ,,hvernig væri að ég fengi að vera með? Þetta er Franska hjólreiðakeppnin Stulli minn. Það væri allt í lagi að taka þátt í henni, þú getur aldrei náð gullinu í þessari keppni á þrekhjóli ,það er útilokað, þú segir þannig frá því?


Þú veist það Baddi minn, að þetta verður bannað eftir kosningar ef Ingibjörg Sólrún, Steingrínur J og Atti kati nóa, komast að. Þá verður þú að borða þína banana þversum líka, annað er bara klám, þú veist það !

Frá, frá .strákar! Hvað ert þú að fara Bergur? Ég er að fara út á verkstæði að láta gera við stólinn. En Bergur, ætlarðu þá til baka á stólnum sem er búið að gera við ? Er búið að gera við hann ? Það eru margir mánuðir síðan Bergur minn, hvar hefur þú verið elsku drengurinn minn !!!



> Nú eru menn í stuði,,er þetta ekki allt eftir bókinni Fribbi minn eða þannig !!

Þetta hljóta að vera risaeðlur, það getur ekki verið annað, nema ég hafi minnkað svona mikið. Hvað sýnist ykkur ? mér finnst ég eðlilegur?.


Mér finnst þessi mynd nokkuð lík þér Elli minn . Get bara ekki gert að því, hvað finnst þér ? Eða er þetta bara eintómt bull í mér. En þetta er betra en fótbolti finnst þér ekki !!



Það er svakalegt að lenda í plankastrekkjaranum í Bykó, það get ég sagt af 
eigin reynslu, eins og þið sjáið!!!!


Þórður, þú verður að hjóla hraðar svo við getum varið okkur, ætli maður verði þá ekki að gefa svolítið í? Jú þú verður að gera það Þórður minn?






> Mér sýnist að það hafi verið gerð einhver mistök í þessari aðgerð. Það
> er ekki hægt annað en að kvarta við landlækni.. Það var lán að þeir
> skildu ekki taka af manni, þið vitið þennan eina sanna þarna, þið vitið!!!!





> Það hefði verið meira vit í því að kaupa svona bíl Sigrún mín, Þetta
> er góður bíll og hættu þessu röfli kall! Þú ferð að verða svolítið þreytandi.



Það þýðir ekkert að stara á þetta Jónsi, það verður bara að drekka þetta áður en þetta skemmist. Kallaðu bara á alla vinnufélagana til að drekka með þér Jónsi minn.





Verður maður ekki að vera eins og allir hinir og fá sér hund, annars fellur maður ekki inn í umhverfið !!



> Er þetta draumabíllinn þinn Sigrún mín? Heldurðu að það sé nokkurt vit
> í þessu? Þetta er ekkert nema skrautið, þessi bíll !!!!



Skota pils, já skota pils Gunni minn, ég er svo mikið að spekúlera Gunni, þori valla að segja það, en læt það bara vaða ,ertu í buxum undir pilsinu? Bara forvitni Gunni minn..






> Það geta fleiri veitt en þú Fribbi !! Ég hleypti bara 380 voltum á djöfsa
> og hann steinlá !
>



Það verður einhver gráturinn í

Eyjaskeggjum þegar þeir eiga að setja þennan í 189unna, þá væri gaman að vera fluga á vegg





> Þetta er svolítið líkt þér Gunni! Finnst þér það? Já mér finnst það,
> en mér finnst hin ekkert lík mér, hún er miklu líkari honum Gumma
> frænda, þessi fallegi kynþokkasvipur yfir andlitinu á honum ....
>


Þetta er nú meira vatnsflóðið, ég veit ekki hvar ég enda. Það vill til að Miðnesheiðin er ekki há..




Hvað ætlið þið að gera við þetta ferlíki, ekki ætlið þið að reyna að verka þetta ? Við ætluðum að fá þig til þess Þórður, Hu þið eruð bjartir þykir mér..




Þá er ég tilbúinn í kappakstur við þig Baddi minn. Þú átt enga möguleika að mínu mati !


!

Eru frændurnir að spá í svona eðalvagn ?,ætla þeir að bjóða upp á hópferðir





Hef tekið að mér að keyra leigubíl í frítímum og mun ég verða með lægsta verðið á öllum leiðum. Og skildi engan undra þar sem ég nota vistvæna orku. Það mun eiga eftir að ryðja sér til rúms í framtíðinni að fróðir menn telja?





Eruð þið komnir í slökkviliðið hjá eyjarskeggjum, besta slökkvilið landsins ! Það er ekki að spyrja að því með ykkur, veljið alltaf besta liðið.



Minn að skoða, þetta er samt í smá móðu hjá mér. er einhver sem man betur ? Þetta er ekki á Kagadú, kannski man ég það ekki !!!

Ég hlýt að fá að spila með Rósa núna ! Kominn á svona hjól ????

Ertu orðinn prestur Siggi minn ? Ég hef mikla trú á þér, þú verður örugglega betri en þessir sem voru í Breiðuvík og á Bjargi, það hef ég trú á...

Ertu kominn í skóarhöggið Siggi ? Þetta er engin smá bolur, þetta er bara fyrir heljarmenni að saga svona trjábol.....

Það er búið að biðja mig að fara til miðausturlanda og stilla til friðar, svo ég fékk mér föt við hæfi..

Flettingar í dag: 10
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 402
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 460030
Samtals gestir: 59704
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 02:58:20
clockhere

Um mig

Nafn:

Sturla V Högnason

Farsími:

8979529

Afmælisdagur:

27 Ágúst

Heimilisfang:

Smáratún 18 Keflavík

Staðsetning:

Ísland

Faðir:

Högni Sturluson

Móðir:

Júlíana Guðrún Júlíusdóttir

Um:

Sturla er Vefstjóri þessarar síðu. þakkar Pabba Mömmu Afa Ömmu Siggu og Nonna fyrir það

Tenglar