Myndasíða Sturlu Högnasonar. Myndir úr fórum Sturla Högnasonar og Sigrúnar Reimarsdóttur.

Mynd Lokinhamrar í Arnarfirði

Grín myndir no 3

-Þá störtum við nýrri síðu Hrönn mín og reynum að hafa gaman af þessu bulli í síðunni. Ég reyni að senda liðið út og suður eftir hentileikum. Láttu þér ekki bregða þó þeir mæti samt í vinnu, hahaha, eins og einhver myndi segja. Þinn vinur Sturla H.

Ætli það sé ekki við hæfi að hafa eina góða af eiganda síðunnar, til skemmtunar fyrir þá sem flækjast um netið!! Góða skemmtun....

Hvernig líst ykkur á nýja búninginn minn ? Er hann ekki skrautlegur ? Hef hugsað mér að mæta í honum í allar stærri veislur sem ég verð boðinn í .....

Hvaða krypplingur er þetta ? Er einhver sem þekkir hann !!

Er verið að fara í stórveislu strákar ? Hver á stór afmæli núna ? það hlýtur að vera einhver sjálfstæðismaður fyrst að þið eruð svona flottir í tauinu !! Er það Elli. Sk. Ve ?

Hvað er um að vera Rósi ? Ekki ætlarðu að sitja á þessum skratta og hleypa skoti af þessum forngrip !Þá þykir mér þú kaldur. Verð að segja það....

Hef tekið að mér að auglýsa gúmmístígvél og vettlinga, þeir eru uppháir

Maður er tekinn fyrir á hverjum degi, kallast þetta ekki einelti ? Nei Stulli minn, þeta kallast rannsóknarblaðamennska og á fullan rétt á sér í nútíma þjóðfélagi. Þú sérð bara þetta með Byrgið , svo er það Breiðavík og hvaða upptökuheimili verður það næst góurinn ! Þú verður sendur í Breiðuvík ef þú hættir ekki þessari óreglu !!!!!!!!!!!!!!

Hvaða fyllirí er þetta á þér ? Það endar með því að þú verður sendur í Byrgið til Guðmundar og misnotaður eftir þörfum góurinn.

Hvað varstu gamall þegar þessi mynd var tekin af þér Stulli ? Ég hef allavega verið koninn á kynþroskaaldurinn ! Þið sjáið að það er farið að vaxa skegg á mig !!!!

Ég lenti í smá tilraunum, var beðin að taka þátt. Það á að skoða þekktustu framsóknarmennina, það er þetta framsóknargen, það er víst besta genið.. þarf samt að vera ekta, ekki gervigen..

Þú færð að velja fyrsta lagið Rósi. Engan troðning strákar, það kemur að ykkur næst. Næst verður Siggi. Svo Bjössi og Hreiðar. Svona Baddi minn, ekki reyna að troðast.

Æ, æ, Gunni dastu í pollinn ? hvernig er vísan, þú veist Raufarhöfn og pollurinn fúli manstu hana. Gunni minn ég þarf að læra hana hjá þér við tækifæri...

Heyrðu Ævar minn, ertu kominn á sjens hvað heldurðu að konan segji obb og bobb..

Gengur eitthvað illa í bókhaldinu Gunni, stemma færslurnar ekki hjá þér ? Þú veist að það gengur ekki . Þetta þarf að passa annars er skatturinn komin í þetta hjá þér....

Heiðursborgari var valinn í Sandgerði fyrir skömmu og fyrir valinu varð hann Ævar. Af því tilefni var reist stytta af honum fyrir framan Stjórnsýsluhúsið............

Er verið að selja kvóta eða skip án kvóta Gunni minn, það hefði verið betra að vinna áfram með okkur skemmtilega fólkinu í Nesfisk þá væri ekki þessi raunarsvipur á þér.. Gunni gangi þér allt í haginn drengurinn minn.

Það er víst fyrirséð að ég fæ ekki að vera með honum Rósa í hljómsveit, hann segir alltaf nei....

Það er ekki nokkur friður fyrir röflinu í þessum manni, hann er æstur í að vera með mér í hljómsveit...

Heldurðu að þetta geti orðið nýji hljómsveitarbúningurinn Rósi ? Nei, er búinn að segja þér að ég spila aldrei með þér, þú heldur ekki lagi, er það skilið!!!!

Þetta er nú hressandi Rósi minn, að hjóla svona í hádeginu og svo getum við rætt þetta með hljómsveitina. Nei hættu nú, þú ert rammfalskur þetta er bara bölvað gaul í þér..

Hvernig líst þér á að við stofnum hljómsveit saman Rósi ? Ég ætti nú ekki annað eftir en að spila með þér rammfölskum! Er það ekki í tísku núna að geta ekki haldið lagi..

Varstu að fá þér nýtt hjól Stulli? Það er alveg í stíl við þig, þú tekur þig bara vel  út....

Ekki lýst mér á það, er mín ekki að læðast inná bílasöluna hjá Sissa, hann selur henni eittkvað rándýrt !! Það er best að læðast og reyna að heyra samræðurnar hjá þeim...

Nei, nei, hún er að spá í volswagen hjá Kjartani. Það er best að fara svolítið nær, hún þekkir mig ekki í þessu gervi....

Það er eins gott að fylgjast með því sem konan er að bralla, hún gæti verið að versla sér Volvo fyrst henni datt það í hug. Vonandi þekkir hún mig ekki í Tinna gerfinu...

> Nei Sigrún mín, þú færð ekki að kaupa svona bíl það er ekki til

> umræðu, það væri nær hjá þér að skoða Austin mini hann er

> sparneytnari. Það er engin leið að gera hinn út, hann eyðir svo miklu !!

Þetta ætti að duga í vinnsluna svona í ein dag fyrir hana Hrönn, mér sýnist að það þurfi nokkra pólverja til að flaka þessa ýsu og ekki hægt að setja hana í 189, hún færi aldrei rétt í hana ho ho.....

Hún Bobba tók þátt í Garðskagahlaupinu og varð í 1. sæti. Til hamingju með það Bobba.

Nú verðum við að vinna þessa keppni... Við látum Gumma ekki vinna okkur á þessu mótorhjóladrasli sínu..

Ég ætla ekki að láta taka mig á of miklum hraða þó að ég sé kominn á kraftmikið hjól... Það er bara prinsipp mál hjá mér..

Hér er svo næsta fræga sýningardama og sýnir nýjustu hönnunina og það er hin söngelska Sveinbjörg..

Tískusýning var haldin í Garðinum fyrir skömmu og komu þar fram nokkur fræg númer og birtum við hér fyrsta númerið : Valdimar V

Hér sjáið þið jólafötin í ár og jafnvel næsti þjóðbúningur ! Það mun vera í umræðunni....

Hérna er stytta af honum afa þínum íris mín. Þegar þú stækkar áttu eftir að sjá svona styttur af afa þínum út um allan heim...

Ég fann aðra mynd af mér í Kína, strákar þetta getur ekki allt verið plat, jú það tekur enginn mark á þér Stulli....

Það eru styttur um allt af manni, við erum bara svona vinsælir framsóknarmennirnir, ætli strákarnir viti það

Bíómyndin Hlynsævintýri með stórleikaranum Bergi verður frumsýnd  2. janúar n. k. Örfáir miðar eftir og verða þeir seldir hæstbjóðanda.

Hvernig væri að fara að bjóða upp á konfekt Bergur ? þetta bráðnar bara í þessum hita vinur, ætlarðu að bíða eftir því ! Nú skil ég, þetta er bara vaxmynd af þér vinur...

                   Gleðileg jól gott og farsælt komandi ár

                               þökkum allt það liðna

                                          Stulli og Sigrún

Hvernig var þetta, átti ég að kyssa hana á kinnina eða átti það að vera munn við munn aðferðin, þú verður að vera viss, það sagði mamma alltaf.....

Það var mikið að einhver veiddi almennilegan fisk. Mér líst vel á þennan hjá þér, þú ert alvöru veiðimaður Friðbjörn....

Steini minn, þetta er bara bölvaður tittur eins og hjá Rúnari, þið verðið að gera betur en þetta...

Þessi er nú lítill Rúnar,, þú þarft ekki að vera að hæla þér þó þú hafir fengið þennan titt, já já þetta er meira en sumir hafa fengið, maður fær örugglega að heyra það......

Hvernig er þetta með þig Solla, ertu komin í auglýsingabransann eða varstu að fá þér nýan bíl....

Þú þarft ekki að fara í svona búning Stulli, þú ert nógu mikil jólasveinn eins og þú ert.

Til hamingju með afmælið Rósi minn, jóli hehe

Ég fór til Kína um daginn strákar. Þú ert bara að skrökva, ég er með mynd af mér þar í Kínverskum leigubíl. Hver heldurðu að taki mark á myndunum þínum, þær eru örugglega falsaðar.

Þú þarft ekki að vera að kvarta Bjössi, búin að fá þennan fína bíl til að fara í á hjallana. Það er ekkert hægt að nota þetta,,,, hvaða vanþakklæti er þetta í þér!

Mér þykir vænt um það að stytta af mér skuli vera orðin vinsælasta jólagjöfin. Vona að þessi stytta eigi eftir að sóma sér vel á arinhillum landsmanna....

Garðbúar hafa reist tvíburaturna að bandarískri fyrirmynd, þeir gátu ekki verið minni en Keflvíkingar, ætli Bragi hafi reist þá ! Var búið að fá leyfi fyrir þessu....

Flott að vera búin að setja upp frelsisstyttu í Keflavík, hvenær skyldu þeir í Garðinum fá sér eina slíka...

-Nú hefur gulldrengurinn fengið sér nýtt fjallahjól og alklæðnað úr gulli og ætlar að taka þátt í næstu hjólreiðakeppni. Vonandi vinnur hann gullið svo þetta verði allt í stíl....

Nú er maður tilbúin á hvalveiðarnar með þennan fína byssusting. Maður tekur tvo til þrjá í sumar eins og ekkert sé..

 

Þið verðið að bíða svolítið lengur strákar mínir. Það er verið að tappa þessum jólabjór á flöskurnar, en það er þess virði að bíða eftir honum, hann er góður.Brosa svolítið og taka lagið á meðan. Rósi verður forsöngvarinn.

-Heyrst hefur að nýjasti húseigandinn á Hvammstanga verði gerður að heiðursborgara og afhjúpuð verði stytta af því tilefni á komandi sumri...

-Það þýðir ekkert annað en að vera í góðu formi nú til dags, annars er bara gert grín að manni !! Og boxið er góð líkamsrækt þá reynir á alla vöðva  líkamans...............

Getur verið að sumir hafi þurft að vinna fyrir bjórnum í Köben ? Ekki láta Fribba hafa þetta sull, Rabbi ég myndi ekki fá mér svona glundur,fáðu þér bara bjór eins og Rúnar...

-Menn tóku að sér ýmsa hluti í Köben, skemmta gestum og gangandi með hljóðfæraleik ásamt því að selja bækur....

 

-Hættu að hanga í stafnum strákormurinn þinn, hefurðu ekkert þarfara að gera ? Má ég ekki leiða þig svo þú dettir ekki á höfuðið, þú mátt ekki við því það er svo hátt fallið hjá þér að þú fengir líklegast heilahristing !

Hvammstangi komst í heimsfréttirnar í sumar þegar þar seldist eitt einbýlishús og af því tilefni voru reistar styttur af kaupanda og sambýlismanni hennar við gatnamótin að byggðalaginu. Þessa viðburðar verður minnst á hverju ári með útihátíð hér eftir.

-Gunni minn, ég ætla að fá 1 bjór.Svona þér að segja Gunni minn, þá myndi ég ekki vinna lengi hérna, þú ert allur orðinn morandi í köngulóarvef á stuttum tíma.

-Hér leikur Stulli listir sínar við mikinn fögnuð Sveinbjargar og Kollu.

-Er verið að fá sér nýtt grill Ingi minn?? Eða varstu að pússa gamla grillið upp? -Þetta er spánýtt, með fullkomnasta brennaranum á markaðnum í dag    !!!

Flettingar í dag: 10
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 402
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 460030
Samtals gestir: 59704
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 02:58:20
clockhere

Um mig

Nafn:

Sturla V Högnason

Farsími:

8979529

Afmælisdagur:

27 Ágúst

Heimilisfang:

Smáratún 18 Keflavík

Staðsetning:

Ísland

Faðir:

Högni Sturluson

Móðir:

Júlíana Guðrún Júlíusdóttir

Um:

Sturla er Vefstjóri þessarar síðu. þakkar Pabba Mömmu Afa Ömmu Siggu og Nonna fyrir það

Tenglar